Borði
Sunnudaginn 11. mars heldur SBKÍ Íslandsmót í keyrslu rafknúinna götubíla í braut félagsins í Korputorgi. Keppt verður í tveimur flokkum. Opnum flokki og "stock" flokki þar sem mótortakmark er 10,5t og breytanleg tíming á hraðastilli er ekki leyfileg (ef fólk á ennþá 9,5t eða brushed frá fyrri árum þá má það keyra með stock flokki).

Keppnisfyrirkomulag er hefðbundið nema hvað við ætlum að hafa 3 tímatökur í staðin fyrir 2.

Þáttökugjald er 2000 kr. fyrir meðlimi SBKÍ og 2500 kr. fyrir aðra. Ef keppandi vill taka þátt í báðum flokkum þá kostar það 1000 kr. aukalega.

Húsið opnar kl. 9:00 og skráning er frá 9:45-10:00

Nánari upplýsingar og nákvæmari dagskrá má finna á spjallinu.

Þann 5. febrúar næstkomandi verður haldin keppni í samstarfi við Tómstundahúsið. Keppt verður í tveimur flokkum. Opnum modified flokki og stock flokki. Í modified flokknum eru engin mótortakmörk en í stock flokki þurfa bílar að vera með 10.5t mótor eða kraftminni.

Opnunartímar þangað til verða:
Sunnudagurinn 29. janúar frá kl. 12
Laugardagurinn 4. febrúar frá kl. 14

Endilega mæta og æfa sig og kynnast brautinni. Ef það verðar einhverjar aukaopnanir verða þær kynntar á spjallinu.

Keppnisfyrirkomulag verður með hefðbundu sniði. Keppt er í 5 mínútna umferðum og keyrðar eru 2 tímatökur sem ákvarða rásröð og síðan 3 úrslitaumferðir.



Dagskrá keppninnar:
09:00 Húsið opnar
10:00 Skráningu lýkur

10:00 - 10:05 Ökumannafundur

1. Tímataka
10:15 - 10:20 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
10:45 - 11:50 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

2. Tímataka 
11:15 - 11:20 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
11:45 - 11:50 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

Matarhlé

1. Umferð 
12:30 - 12:35 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
13:00 - 13:05 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

2. Umferð 
13:30 - 13:35 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
14:00 - 14:05 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

3. Umferð 
14:30 - 14:35 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
15:00 - 15:05 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

15:15 Verðlaunaafhending 

Ath. að ræst verður sjálfkrafa með tölvukerfi eins og gert hefur verið í síðustu keppnum. Keppendur eru því hvattir til að mæta tímanlega á ráslínu.
Dagsetningar fyrir onroad keppnir þetta vorið eru komnar á hreint.

Þær eru:

15. janúar 2012
5. febrúar 2012
11. mars 2012

Endilega takið dagana frá. Nánari upplýsingar koma síðar.
Þann 15. janúar næstkomandi verður í samstarfi við verslunina Smabilar.is haldin bikarkeppni SBKÍ í glæsilegri aðstöðu félagsins í Korputorgi. Keppt verður á nýlega lagðri, stórglæsilegri 600m2 braut sem er eftirmynd  keppnisbrautinni á LRP Masters 2007. Það er nýlega búið að stórbæta alla aðstöðu í húsnæðinu og þessi keppni verður því hin allra glæsilegasta.

Smabilar.is mun halda happdrætti meðal keppenda og gefa ýmislegt skemmtilegt smábíladót á keppninni.

Keppnisfyrirkomulag verður með hefðbundu sniði. Keppt er í 5 mínútna umferðum og keyrðar eru 2 tímatökur sem ákvarða rásröð og síðan 3 úrslitaumferðir.

Keppt verður í tveimur flokkum. Opnum modified flokki og stock flokki. Í modified flokknum eru engin mótortakmörk en í stock flokki þurfa bílar að vera með 10.5t mótor eða kraftminni.

Dagskrá keppninnar:
09:00 Húsið opnar
10:00 Skráningu lýkur

10:00 - 10:05 Ökumannafundur

1. Tímataka
10:15 - 10:20 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
10:45 - 11:50 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

2. Tímataka 
11:15 - 11:20 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
11:45 - 11:50 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

Matarhlé

1. Umferð 
12:30 - 12:35 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
13:00 - 13:05 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

2. Umferð 
13:30 - 13:35 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
14:00 - 14:05 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

3. Umferð 
14:30 - 14:35 1/10 Flokkur óbreyttir bílar (Stock)
15:00 - 15:05 1/10 Flokkur Breyttir bílar (Modified)

15:15 Verðlaunaafhending 

Ath. að ræst verður sjálfkrafa með tölvukerfi eins og gert hefur verið í síðustu keppnum. Keppendur eru því hvattir til að mæta tímanlega á ráslínu.

Mynd af brautinni:

Dagatal

May 2012
S M T W T F S
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Könnun Veldu einn möguleika

Tekur þú þátt í On-Road innanhús í vetur